Hagar hf og tengd félög með verðkönnun á tryggingum.

15. apríl 2020

Hagar hf og tengd félög með verðkönnun á tryggingum.

Consello kláraði nýlega verðkönnun fyrir Haga hf og aðila þeim tengdum.

Hagar hf. er leiðandi verslunarfyrirtæki á íslenskum matvöru-, sérvöru- og eldsneytismarkaði en félagið var stofnað í núverandi mynd árið 2003. Félagið starfrækir 40 matvöruverslanir, 28 Olís þjónustustöðvar, 43 ÓB-stöðvar, tvær birgðaverslanir, þrjár sérvöruverslanir, tvö apótek, tvö vöruhús og tvær framleiðslustöðvar. Kjarnastarfsemi Haga er á sviði matvöru og tengdra vöruhúsa, auk eldsneytissölu. Hagar eru skráðir á aðallista NASDAQ OMX Iceland með auðkenninu HAGA. Höfuðstöðvar félagsins eru í Kópavogi. 

Fyrirtæki Haga eru starfrækt í sjö dótturfélögum. Fyrirtækin eru rekin sem sjálfstæðar rekstrareiningar og hafa þess vegna ólík rekstrarform og ólíka menningu. Hlutverk Haga er að veita fyrirtækjum sínum aðhald í rekstri og finna sameiginlega fleti sem leitt geta til hagræðingar í kostnaði og aukið tekjumöguleika fyrirtækjanna og um leið samkeppnisstyrk þeirra. Hlutverk Haga er enn fremur að skapa virði fyrir hluthafa sína með arðsömum rekstri.

Dótturfélög í samstæðu Haga eru Hagar verslanir ehf., Olíuverzlun Íslands ehf., Bananar ehf., FKV ehf. (áður Ferskar kjötvörur ehf.), Noron ehf., Reykjavíkur Apótek ehf. og Mjöll Frigg ehf., sem er dótturfélag Olís.

Undir hatti Haga verslana ehf. eru fyrirtækin Bónus, Hagkaup, Aðföng og Útilíf. Bónus og Hagkaup eru tvær af stærstu matvöruverslunarkeðjum landsins og sinnir vöruhúsið Aðföng stoðþjónustu við matvörukeðjurnar. Útilíf er smásölufyrirtæki sem sérhæfir sig í sölu á íþrótta- og útivistarvörum.
2. júní 2025
Consello sá nýlega útboð á tryggingum Garðabæjar. Garðabær er eitt fjölmargra sveitafélaga sem nota þjónustu Consello þegar kemur að tryggingamálum en Consello hefur áður unnið útboð á tryggingum sveitafélagsins. Útboð sveitafélaga er umfangsmikið og tímafrekt verkefni þar sem að mörgu er að hyggja. Stafsmenn Consello skoða trygginga- og tjónayfirlit sveitafélagsins, taxtar og tjón eru skoðuð og metin, farið er í vettvangsferðir, allt til að fá skýra mynd af umsvifum og hvort einhver göt væru í vernd sem bæta þarf. Útboðið var auglýst á EES, útboðsvef og heimasíðu bæjarfélagsins.
3. nóvember 2024
Consello lauk nýverið við að aðstoða Landsvirkjun við útboð á innanlands tryggingum fyrirtækisins. Landsvirkjun er stærsta orkufyrirtæki landsins og er í eigu íslensku þjóðarinnar. Landsvirkjun vinnur rafmagn úr endurnýjanlegum orkugjöfum, vatnsafli, jarðvarma og vindi. Útboðið var auglýst á TED (Tender Electronic Daly) sem er útboðavefur Evrópska efnahagssvæðisins og gekk vel og var mikill áhugi á útboðinu meðal þátttakenda.