Origo endurnýjar CYBER tryggingar sínar.

Petra Magnúsdóttir • 1. apríl 2021

Origo er eitt öflugast og sterkasta þjónustufyrirtækið á íslandi á sviði upplýsingatækni. Hlutverk fyrirtækisins felst í að aðstoða viðskiptavini að ná enn betri árangri í sínum rekstri með aðstoð upplýsingatækni, sérfræðiþekkingu starfsfólks og lipurri þjónustu.


Fyrirtæki eins og Origo er mjög annt um sína viðskiptavini og verði þeir fyrir tjóni þá eru þeir með öflugar CYBER tryggingar, en þær tryggingar bæta tjón viðskiptavina vegna tölvuárásar eða öryggisbrests í tölvukerfum fyrirtækja og stofnana. Að baki árásum geta legið margvíslegar ástæður, von um fjárhagslegan ávinning, pólitískur eða andfélagslegur tilgangur eða skemmdarfýsn.


Origo hefur verið með þessa tryggingu í nokkurn tíma og telja að það sé mikið öryggi fólgið í því fyrir þá og þeirra viðskiptavini.

2. júní 2025
Consello sá nýlega útboð á tryggingum Garðabæjar. Garðabær er eitt fjölmargra sveitafélaga sem nota þjónustu Consello þegar kemur að tryggingamálum en Consello hefur áður unnið útboð á tryggingum sveitafélagsins. Útboð sveitafélaga er umfangsmikið og tímafrekt verkefni þar sem að mörgu er að hyggja. Stafsmenn Consello skoða trygginga- og tjónayfirlit sveitafélagsins, taxtar og tjón eru skoðuð og metin, farið er í vettvangsferðir, allt til að fá skýra mynd af umsvifum og hvort einhver göt væru í vernd sem bæta þarf. Útboðið var auglýst á EES, útboðsvef og heimasíðu bæjarfélagsins.
3. nóvember 2024
Consello lauk nýverið við að aðstoða Landsvirkjun við útboð á innanlands tryggingum fyrirtækisins. Landsvirkjun er stærsta orkufyrirtæki landsins og er í eigu íslensku þjóðarinnar. Landsvirkjun vinnur rafmagn úr endurnýjanlegum orkugjöfum, vatnsafli, jarðvarma og vindi. Útboðið var auglýst á TED (Tender Electronic Daly) sem er útboðavefur Evrópska efnahagssvæðisins og gekk vel og var mikill áhugi á útboðinu meðal þátttakenda.