Þjónustan


Cyber tryggingar

Sérhæfð tryggingaráðgjöf gegn netárásum og tölvuglæpum – vernd fyrir gögn, orðspor og rekstur.

Sjá nánar
Svart-hvít teikning af flugvél á hvítum bakgrunni. Flugsamgöngur Sérhæfð ráðgjöf í flugtryggingum byggð á áratugareynslu og beinum tengslum við alþjóðlega vátryggingamarkaði.

Flugsamgöngur

Sérhæfð ráðgjöf í flugtryggingum byggð á áratugareynslu og beinum tengslum við alþjóðlega vátryggingamarkaði.

Sjá nánar
Svartur og hvítur skjöldur með hakmerki á. Tryggingar sveitarfélaga Fagleg og óháð ráðgjöf í tryggingamálum sveitarfélaga með áherslu á vernd, forvarnir og hagkvæmni.

Tryggingar sveitarfélaga

Fagleg og óháð ráðgjöf í tryggingamálum sveitarfélaga með áherslu á vernd, forvarnir og hagkvæmni.

Sjá nánar
Svart og hvítt tákn af hring með tveimur örvum sem vísa í gagnstæðar áttir. Fyrirtækjaráðgjöf

Fyrirtækjaráðgjöf

Óháð og fagleg fyrirtækjaráðgjöf í tryggingamálum sem tryggir betri vernd og hagkvæmari lausnir.

Sjá nánar

Ráðgjöf sem skilar fjárhagslegum ávinningi og bættri tryggingarvernd.”

Sérfræðingar í vátryggingum

Starfsfólk Consello býr yfir áratugareynslu af ráðgjöf, útboðsgerð og vátryggingamálum. Við vinnum náið með viðskiptavinum, veitum faglega og persónulega þjónustu og finnum lausnir  sem skila raunverulegum ávinningi.

Við greinum tryggingaþarfir fyrirtækja og drögum fram helstu áhættur í starfseminni. Slíkar greiningar skapa forsendur fyrir réttari iðgjöld og skilvirkari tryggingavernd.

Consello hefur engin tengsl við vátryggingafélög og starfar óháð öllum söluaðilum. Við höfum jafnan aðgang að íslenskum og erlendum vátryggingamörkuðum, þar á meðal Lloyd’s í London.


Þjónustan felur m.a. í sér:


  • Vátryggingamiðlun og útboðsgerð
  • Áhættumat, iðgjaldaeftirlit og tjónaumsjón
  • Samráð við tryggingafélög, vinnueftirlit, stéttarfélög o.fl.
  • Persónulega þjónustu við viðskiptastjóra

Við tökum að okkur daglega umsýslu vátrygginga, léttum álagi af stjórnendum og starfsfólki og tryggjum að sérfræðingar með djúpa þekkingu sjái um málin.


Vátryggingar sem við sinnum:


  • Ábyrgðartryggingar (TPL, D&O, PLI)
  • Eignatryggingar og aláhættutryggingar
  • Verktaka- og flugtryggingar
  • Netöryggistryggingar (CYBER)


"Okkar markmið er að veita tryggingaþjónustu sem er gagnleg, einföld og sniðin að raunverulegum þörfum viðskiptavina með virðisaukningu og rekstrarárangur að leiðarljósi."

Ráðgjöf

Vátryggingamiðlari veitir viðskiptavinum faglega og óháða ráðgjöf um vátryggingar. Hann útskýrir mismunandi tegundir trygginga og aðstoðar við að velja þær sem henta þörfum viðskiptavinarins best.

Greining á vá

Hann metur áhættu (vá) viðskiptavinarins og hjálpar til við að ákvarða hvaða tryggingar eru nauðsynlegar.

Útboð og samanburður

Vátryggingamiðlari getur leitað til mismunandi tryggingafélaga og borið saman tilboð til að finna bestu kjörin fyrir viðskiptavin. 

Milliganga um samninga

Hann fylgist með tryggingavernd viðskiptavina yfir tíma og mælir með breytingum ef þörf krefur. 

Uppfærsla og endurskoðun

Hann fylgist með tryggingavernd viðskiptavina yfir tíma og mælir með breytingum ef þörf krefur. 

Aðstoð við tjónauppgjör

Vátryggingamiðlari getur einnig aðstoðað viðskiptavini sína þegar tjón verður, t.d. við að tilkynna tjón og tryggja að réttar bætur séu greiddar. Í stuttu máli: Vátryggingamiðlari/ráðgjafi starfar í þágu viðskiptavinarins, ekki tryggingafélagsins, og hefur það að markmiði að hámarka tryggingavernd og lágmarka kostnað.

Lárus Hrafn Lárusson

Löggiltur vátryggingamiðlari, framkvæmdastjóri


Lárus lauk verslunarskólaprófi 1981 frá Verslunarskóla Íslands. Lárus kláraði flest þau námskeið sem kennd voru á vegum Tryggingaskóla vátrygginga-félaganna á árunum 1981-1990. Þá lauk hann námi frá Opna háskóla HR í vátrygginum 2008. Lárus fékk réttindi sem löggiltur vátryggingamiðlari í maí 2012.
Lárus hóf störf hjá Almennum tryggingum í september árið 1981 og starfaði þar og síðar hjá Sjóvá-Almennum með hléum til ársins 2010 við ráðgjöf og viðskiptaumsjón með fyrirtækjum. 
Helstu starfsvið Lárusar eru aðstoð fyrirtækja við að setja upp All Risks tryggingar, CYBER tryggingar, ábyrgðartryggingar, verktakatryggingar, verktryggingar auk umsjónar með verðkönnunum og útboðum. 

Netfang: 
larus@consello.is 
​Beinn sími 520-2321 og farsími   897-2234

  • Title or Question

    Describe the item or answer the question so that site visitors who are interested get more information. You can emphasize this text with bullets, italics or bold, and add links.
  • Title or Question

    Describe the item or answer the question so that site visitors who are interested get more information. You can emphasize this text with bullets, italics or bold, and add links.
  • Title or Question

    Describe the item or answer the question so that site visitors who are interested get more information. You can emphasize this text with bullets, italics or bold, and add links.

Guðmundur Hafsteinsson

Löggiltur vátryggingamiðlari

Guðmundur er rekstrarhagfræðingur frá Alþjóða Viðskiptaháskólanum í Jönköping útskrifaður 1995. Guðmundur fékk réttindi sem löggiltur vátryggingamiðlari í apríl 2012.
Guðmundur hefur að mestu starfað við flugrekstur, eða frá 1982, að undanskildum árunum 1990 til 1995. Meðal annars hefur Guðmundur starfað hjá Arnarflugi, Atlanta og Avion Group. Lengst af sem framkvæmdastjóri starfsmannasviðs og síðar sem framkvæmdastjóri tryggingarsviða Avion Group. Guðmundur hefur í þessum störfum öðlast mjög víðtæka reynslu og þekkingu á innkaupum trygginga sem hann miðlar nú í starfi sínu sem ráðgjafi.

Netfang: 
gudmundur@consello.is 
Beinn sími 520-2323 og farsími 895-7717


Guðmundur M. Ásgrímsson

Ráðgjafi

Guðmundur er viðskiptafræðingur frá Háskólanum í Reykjavík og lauk námi frá Opna háskóla HR í vátrygginum2012. 
Hann starfaði við fyrirtækjaráðgjöf hjá Kaupþingi frá 2005 til 2009 og Sjóvá frá 2009 til 2013. Áður en hann réðst til starfa hjá Consello starfaði hann hjá Tryggja ehf. við ráðgjöf til fyrirtækja í vátryggingamálum.
Helstu starfsvið Guðmundar er umsjón með verðkönnunum og útboðum auk ráðgjafar. 



Netfang: 
gudmundurm@consello.is 
Beinn sími 520-2322 og farsími 618-3500