Ráðgjöf sem skilar fjárhagslegum ávinningi og bættri tryggingarvernd
Consello hefur starfsleyfi frá Fjármálaeftirlitinu til að annast tryggingaráðgjöf og miðlun. Consello hefur unnið með fjölda fyrirtækja og stofnana að útboði trygginga, áhættumati, áhættugreiningu, skráningu verkferla og gerð tryggingahandbóka.
Árangurinn sýnir ótvírætt að þessi ráðgjöf skilar fjárhagslegum ávinningi og tryggingalegri hagræðingu ásamt aukinni þekkingu innan viðkomandi fyrirtækis eða stofnunar. |
Lárus Hrafn Lárusson,
|
Guðmundur Hafsteinsson,
|
Lárus lauk verslunarskólaprófi 1981 frá Verslunarskóla Íslands. Lárus kláraði flest þau námskeið sem kennd voru á vegum Tryggingaskóla vátrygginga-félaganna á árunum 1981-1990. Þá lauk hann námi frá Opna háskóla HR í vátrygginum 2008. Lárus fékk réttindi sem löggiltur vátryggingamiðlari í maí 2012.
Lárus hóf störf hjá Almennum tryggingum í september árið 1981 og starfaði þar og síðar hjá Sjóvá-Almennum með hléum til ársins 2010 við ráðgjöf og viðskiptaumsjón með fyrirtækjum. Helstu starfsvið Lárusar eru aðstoð fyrirtækja við að setja upp All Risks tryggingar, CYBER tryggingar, ábyrgðartryggingar, verktakatryggingar, verktryggingar auk umsjónar með verðkönnunum og útboðum. Netfang: [email protected] Beinn sími 520-2321 og farsími 897-2234 |
Guðmundur er rekstrarhagfræðingur frá Alþjóða Viðskiptaháskólanum í Jönköping útskrifaður 1995. Guðmundur fékk réttindi sem löggiltur vátryggingamiðlari í apríl 2012.
Guðmundur hefur að mestu starfað við flugrekstur, eða frá 1982, að undanskildum árunum 1990 til 1995. Meðal annars hefur Guðmundur starfað hjá Arnarflugi, Atlanta og Avion Group. Lengst af sem framkvæmdastjóri starfsmannasviðs og síðar sem framkvæmdastjóri tryggingarsviða Avion Group. Guðmundur hefur í þessum störfum öðlast mjög víðtæka reynslu og þekkingu á innkaupum trygginga sem hann miðlar nú í starfi sínu sem ráðgjafi. Netfang: [email protected] Beinn sími 520-2323 og farsími 895-7717 Guðmundur Marínó Ásgrímsson, ráðgjafiGuðmundur er viðskiptafræðingur frá Háskólanum í Reykjavík og lauk námi frá Opna háskóla HR í vátrygginum2012.
Hann starfaði við fyrirtækjaráðgjöf hjá Kaupþingi frá 2005 til 2009 og Sjóvá frá 2009 til 2013. Áður en hann réðst til starfa hjá Consello starfaði hann hjá Tryggja ehf. við ráðgjöf til fyrirtækja í vátryggingamálum. Helstu starfsvið Guðmundar er umsjón með verðkönnunum og útboðum auk ráðgjafar. Netfang: [email protected] Beinn sími 520-2322 og farsími 618-3500 |
Starfsábyrgðartrygging.
Consello ehf starfar eftir lögum nr. 62/2019 um dreifingu vátrygginga og er með starfsábyrgðartryggingu hjá Verði tryggingum hf.
Persónuverndarstefna
Consello ehf fer eftir ákvæðum laga nr. 90/2018 um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga eftir því sem við á.
Consello ehf starfar eftir lögum nr. 62/2019 um dreifingu vátrygginga og er með starfsábyrgðartryggingu hjá Verði tryggingum hf.
Persónuverndarstefna
Consello ehf fer eftir ákvæðum laga nr. 90/2018 um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga eftir því sem við á.