Reglugerðir vátryggingamiðlara og aðrar upplýsingar um Consello ehf




Consello ehf hefur starfslefi frá Fjármálaeftirliti Seðlabanka íslands. Starfsleyfi Consello ehf tekur til miðlunar frumtrygginga í heild skv. 21 og 22 grein laga um vátryggingastarfsemi nr. 56/2010.

Consello ehf hefur stafsábyrgðartryggingu hjá Verði tryggingum hf.

Lagalegur fyrirvari

Er að stuðla að því að Consello fari með upplýsingar í samræmi við lög um persónuvernd og friðhelgi einkalífs, sbr. lög nr. 90/2018 um Persónuvernd og meðferð persónuupplýsinga auk annarra réttarreglna sem við eiga hverju sinni og varða meðferð persónuupplýsinga og trúnaðarskyldu.

Þetta nær til allra starfsmanna, stjórnarmanna sem og annarra sem taka að sér verk í þágu Consello.

Reglurnar gilda jafnt um upplýsingar sem viðskiptavinir/jónþolar hafa sjálfir veitt Consello, sem og upplýsingar sem Consello hefur aflað um þessa aðila. Reglurnar gilda um alla rafræna vinnslu upplýsinga sem og handvirka vinnslu þeirra.

Varðveisla upplýsinga um viðskiptavini

Upplýsingar um viðskiptavini Consello eru vistaðar í rafrænu formi. Rafræn vistun gagna skal vera á öruggum upplýsinga miðli þar sem öryggisráðstafanir eru uppfærðar í samræmi við skilgreindar kröfur hverju sinni. Upplýsingar um viðskiptavini/jónþola á pappírsformi eru vistaðar í öruggri skjalageymslu.

Félagið hefur sett sér verklagsreglur um vistun og eyðingu persónugreinanlegra gagna. Gögnum með upplýsingum um viðskiptavini/jónþola er eytt með tryggilegum hætti, pappír er sendur til eyðingar og rafrænum gögnum er markvisst eytt í samræmi við fyrrnefndar verklagsreglur.

Upplýsingar um viðskiptavini Consello eru aðgangsstýrðar. Aðgangsheimildir til starfsmanns byggjast á hlutverki hans og starfssviði innan félagsins. Starfsmaður skal einungis leita eftir þeim upplýsingum sem hann þarf á að halda í starfi sínu.

Í ráðningarsamningum starfsmanna, og/ða með sérstakri trúnaðaryfirlýsingu verktaka, er kveðið á um þagnar – og trúnaðarskyldu. Starfsmaður skal gæta fyllsta trúnaðar um hvaðeina er hann verður áskynja í starfi sínu varðandi fyrirtækið og viðskiptavini þess og skaðað getur hagsmuni þessara aðila. Eðli starfs síns vegna ber honum að meðhöndla allar upplýsingar, skjöl og gögn sem hann hefur aðgang að í starfi sínu af fyllsta trúnaði. Trúnaður þessi gildir áfram eftir starfslok.

Viðskiptamenn eiga rétt á að fá afrit af gögnum sem innihalda upplýsingar er varða málefni þeirra hjá Consello. Óski viðskiptamaður eftir afriti af gögnum skal beiðni þess efnis vera skýr og tekið fram á afmarkaðan hátt hvaða gögnum er óskað eftir. Gögn er eingöngu látin af hendi til viðskiptavina gegn framvísun persónuskilríkja eða send á lögheimili hans. Jafnframt eru gögn látin af hendi ef framvísað er gildu umboði s.s. frá lögmanni.

Consello ber ábyrgð á því að vinnsla persónuupplýsinga sé í samræmi við lög og reglur og gerir viðeigandi öryggisráðstafanir til að tryggja að svo sé.