Vátryggingaútboð 2026 í umsjón Consello
Fagleg ráðgjöf og skilvirkt útboðsferli frá undirbúningi til niðurstöðu.

Consello býr yfir víðtækri reynslu af framkvæmd og ráðgjöf við tryggingaútboð. Á árinu 2026 hefur Consello haft umsjón með fjölmörgum útboðum fyrir sveitarfélög og aðra aðila, með góðum árangri.
Útboðin hafa meðal annars verið framkvæmd í gegnum TED-útboðskerfið á EES-svæðinu. Þá tók Consello á árinu mikilvægt skref í áframhaldandi þróun útboðsþjónustunnar með samstarfi við Strending um rafræna útboðsgátt. Með henni verður útboðsferlið einfaldara, skilvirkara og gagnsærra fyrir bæði verkkaupa og bjóðendur.
Consello hefur meðal annars haft umsjón með eftirfarandi útboðum á árinu 2026:
- Háskólinn í Reykjavík
- Húnaþing vestra
- Ísafjarðarbær
- Norðurþing
- Hveragerðisbær
- Sveitarfélagið Skagafjörður
- Grundarfjarðarbær

Hafnarfjarðarkaupstaður og tengdir aðilar óska eftir tilboðum í vátryggingar fyrir tímabilið 2026-2028. Um er að ræða lög- og samningsbundnar tryggingar auk annarra trygginga (EES útboð nr. 762562-2025) Útboðsgögn er hægt að fá með því að senda tölvupóst á larus@consello.is frá og með 18.11.2025 kl 16:00. Opnun tilboða fer fram rafrænt. Í kjölfar opnunar birtir kaupandi samtímis til allra bjóðenda rafrænt opnunaryfirlit sem inniheldur: Nöfn bjóðenda. Heildartilboðsupphæðir

Rangárþing-ytra og tengdir aðilar óska eftir tilboðum í vátryggingar fyrir tímabilið 2026-2028 Um er að ræða lög- og samningsbundnar tryggingar auk annarra trygginga (EES útboð nr. 715656-2025) Útboðsgögn er hægt að fá með því að senda tölvupóst á gudmundurm@consello.is frá og með 29.10.2025 kl 12:00. Tilboðum skal skila á Skrifstofu Rangárþings-ytra, Suðurlandsvegi 1-3, 850 Hellu fyrir kl. 12:00, 27.11.2025 og verða þau opnuð þar í viðurvist þeirra bjóðenda sem þar mæta.

